Hótel Bláfell er rómantískt sveita hótel á Breiðdalsvík.Á hótelinu er að finna 22 herbergi öll með baði, sjónvarpi og síma. Á Hótel Bláfelli er veitingastaður þar sem í boði er alvöru íslenskur heimilismatur yfir sumar mánuðina. Við bjóðum upp á sveitasælu eins og hún gerist best, óviðjafnanlega náttúrufegurð, bæði til sjávar, inn dal og upp til fjalla. Hótel Bláfell er góður kostur fyrir þá sem eru á ferðalagi um austfirði og vilja njóta þess að vera í fögru, þægilegu og rólegu umhverfi í faðmi fjalla. Breiðdalsvík er vel staðsett fyrir ferðalanga en ýmisleg afþreying er í boði í nágrenninu. Hvort sem um er að ræða hina fullkomnu afslöppun, veiði , náttúrufræði eða hestaáhuga þá er Breiðdalsvík góður kostur. |
![]() |

